Konudagsvöndurinn 2024

Þú kemur henni svo sannarlega á óvart með Konudagsvendi Blómstru 2024. Í ár er vöndurinn einstaklega náttúrulegur og fallegur. Blómin í vendinum eru valin af blómahönnuðum Blómstru og líkjast þau einna helst villtum blómum á engi. 

Vöndurinn fæst í takmörkuðu magni og höfum við sett saman ómótstæðilegan Konudagspakka. Þú getur valið um vönd í tveimur stærðum og til að fullkomna þennan ljúfa sunnudag getur þú bætt við öskju með 6 gómsætum fölbleikum makkarónum frá Gulla Arnari ásamt ljúffengum óáfengum búbblum frá Akkúrat.

Þú getur valið afhendingardagsetningu. Við getum afhent á Dropp afhendingarstað, sent heim að dyrum eða þú getur sótt til okkar í 105 Reykjavík.   

Umbúðir

Við notum ekkert plast í umbúðir okkar.

Blómin koma í pappírsumbúðum sem má að sjálfsögðu endurvinna.

Afhending

Heimsending heim að dyrum er innifalin.

Við prófum alltaf að banka eða dingla hjá þér en ef þú ert ekki heima þá hefur það reynst okkur mjög vel hingað til að skilja blómin eftir á umsömdum stað. Staðurinn er tilgreindur í næsta skrefi. Ef veðrið er vont þá skiljum við ekki eftir. Við metum það í hvert sinn.

Við mælum með að þú komir litlum vasa eða lítilli krukku fyrir á umsamda afhendingarstaðinn svo ef til þess kemur að við þurfum að skilja vöndinn eftir þá getum við skilið hann eftir þar. Við erum með vatn í bílnum okkar en það myndi aðstoða sendilinn okkar mikið ef það væri komið vatn í krukkuna þegar við komum.

Ánægjutrygging

Ef þú ert af einhverjum ástæðum ekki ánægð/ur með vöruna eða þjónustu þá viljum við endilega fá að bæta þér það upp. Ekki hika við að heyra í okkur ef svo er <3