Bóndadagur 2024

Ath. sérhannaðir bóndadagsvendir Blómstru komu í takmörkuðu upplagi og eru nú uppseldir. Við þökkum frábærar viðtökur! Ef þú átt eftir að panta blóm fyrir bóndann þinn, þá bendum við á Blómstruvönd vikunnar

 

Bóndadagsvöndur Blómstru er sérlega fallegur í ár. Töffaralegur, ferskur og nýstárlegur lýsir honum best. Litapallettan er sérhönnuð fyrir bóndana okkar, djúpfjólublá með björtu órans-poppi. 

Bóndadagsvöndurinn er frábær einn og sér en best er að njóta hans með sérblönduðu bóndakaffi frá vinum okkar í Kaffistofunni. Bóndakaffið í ár er sérblandað úr þremur tegundum af brasilísku kaffi, frá þremur kaffibændum. Kaffið er dökkristað og "smokey og bbq" er haft að leiðarljósi.  

Þú getur valið afhendingardagsetningu. Við getum afhent á Dropp afhendingarstað, sent heim að dyrum eða þú getur sótt til okkar. 

Umbúðir

Við notum ekkert plast í umbúðir okkar.

Blómin koma í pappírsumbúðum sem má að sjálfsögðu endurvinna.

Afhending

Heimsending heim að dyrum er innifalin.

Við prófum alltaf að banka eða dingla hjá þér en ef þú ert ekki heima þá hefur það reynst okkur mjög vel hingað til að skilja blómin eftir á umsömdum stað. Staðurinn er tilgreindur í næsta skrefi. Ef veðrið er vont þá skiljum við ekki eftir. Við metum það í hvert sinn.

Við mælum með að þú komir litlum vasa eða lítilli krukku fyrir á umsamda afhendingarstaðinn svo ef til þess kemur að við þurfum að skilja vöndinn eftir þá getum við skilið hann eftir þar. Við erum með vatn í bílnum okkar en það myndi aðstoða sendilinn okkar mikið ef það væri komið vatn í krukkuna þegar við komum.

Ánægjutrygging

Ef þú ert af einhverjum ástæðum ekki ánægð/ur með vöruna eða þjónustu þá viljum við endilega fá að bæta þér það upp. Ekki hika við að heyra í okkur ef svo er <3